ShortlistFox
← Back to results

Lögfræðingur á sviði skattaréttar

Deloitte

Kópavogur, Kópavogsbær, is

Apply

About the role

Additional Information

Starfsþróun þín  

  • Við upphaf starfs færðu leiðbeinanda sem kemur þér inn í starfið („Buddy-kerfi“). 
  • Þú færð þjálfun og stuðning frá reyndum sérfræðingum í teyminu þínu sem og „People Leader“ sem aðstoða þig við að þróa þig áfram í starfi. 
  • Þú lærir mikið á þeim fjölbreyttu verkefnum sem þú tekur að þér hjá viðskiptavinum í ólíkum geirum. 
  • Við styðjum við vöxt þinn með símenntunartækifærum. 

 

Að auki bjóðum við upp á: 

  • Frábært mötuneyti með niðurgreiddum morgunmat og hádegismat.
  • Veglegan líkamsræktarstyrk, virkt starfsmannafélag og gott félagslíf
  • Góðan aðbúnað í höfuðstöðvum okkar á Dalvegi
  • Styrki til nýbakaðra foreldra
  • Sjálfboðastarf til áhrifa – launaður dagur til að sinna sjálfbærniverkefnum
  • Fjölbreytt áhugamál samstarfsfélaga þvert á félagið t.d. hlaupahópur, fótbolti í hádeginu og leikjaherbergi  

Við hlökkum til að fá umsóknina þína.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Haraldur I. Birgisson ([email protected]) framkvæmdastjóri og meðeigandi hjá Deloitte Legal.  Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf sem fyrst. Tekið er á móti umsóknum í gegnum heimasíðu Deloitte, www.deloitte.is, til og með 9. nóvember nk. 

 

Vilt þú hafa áhrif? Hjá Deloitte skiptir þitt framlag máli því saman, sem ein heild, vinnum við að því að hafa áhrif á viðskiptavini, samstarfsfélaga og samfélag. Þú færð tækifæri til að taka þátt í fjölbreyttum verkefnum þvert á svið, starfsstöðvar og lönd, auka hæfni þína og færni og hafa góðan stuðning til vaxtar og þróunar í starfi. 

Company Description

Deloitte Legal er framsækin og alþjóðleg lögmannsstofa sem þjónustar fjölbreyttan hóp fyrirtækja í margvíslegum atvinnugreinum á öllum helstu sviðum fyrirtækjalögfræði. Deloitte Legal er jafnframt samstarfsaðili Deloitte á heimsvísu sem samanstendur af 490.000 sérfræðingum og er leiðandi þjónustuveitandi á sviði endurskoðunar og reikningsskila, upplýsingatækniráðgjafar, fjármálaráðgjafar, áhætturáðgjafar og tengdrar þjónustu.   

Deloitte Legal leitar að áhugasömum og metnaðarfullum lögfræðingi í öflugt teymi félagsins, sem samanstendur af hópi lögmanna, lögfræðinga og annarra sérfræðinga. Hjá Deloitte á heimsvísu starfa að auki yfir 2.500 lögfræðingar, sem saman vinna að því að veita framúrskarandi þjónustu. 

Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi til að starfa við skattaráðgjöf og tengd mál 

Job Description

Helstu verkefni lögfræðings: 

  • Úrvinnsla lagalegra álitaefna og ráðgjöf á sviði skattaréttar.
  • Samskipti við stjórnvöld.
  • Skattalegar áreiðanleikakannanir.
  • Skjalagerð.
  • Samvinna með öðrum ráðgjafateymum, hérlendis sem og erlendis. 
  • Önnur  skatta- og lögfræðiráðgjöf við stór sem smá fyrirtæki.

Qualifications

Menntunar- og hæfiskröfur

  • Embættis- eða meistarapróf í lögfræði. 
  • 3-5 ára reynsla af lögfræðistörfum á sviði skattaréttar . 
  • Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
  • Góð greiningarhæfni og lausnamiðuð hugsun.
  • Mjög góð íslensku- og enskukunnátta er skilyrði og geta til að tjá sig, í máli og riti.